Leita í fréttum mbl.is

Barnagleraugu og Hittingur

Ég fór með litluna mína hana Maríu til augnlæknis á mánudag og var uppistaðan sú að hún þarf gleraugu þessi elska er hún bæði færsýn og með sjónskekju og það töluvert mikla                        alveg plús 3 og hálfan á hægra og 4,25 á vinstra og sjónskekju uppá 1,5 á hægra og 2,5 á vinstra svo við förum í gær og máta umgjörð og þvílík dúlla með þau  nú er bara að vona að bæði hún og systur hennar sérstaklega láti þau í friði því það er óskaplega gaman að taka mín af mér 

svo fórum við húsbandið á þríburaforeldrahitting í gærkvöldi og er það alltaf jafn gaman að hitta aðra í sömu sporum því að fólk sem hefur ekki staðið  í þessu það veit ekki hvernig þetta er svo fyrir okkur þríburaforeldra er alveg nauðsinlegt að hittast og fá líka ráð hjá þeim sem eru með eldri þríbura og svo er bara gaman að tala um þessi litlu kraftaverk við fólk sem er í sömu sporum og heyra af uppátækjum hjá svona 3 ára börnum maður bara svitnar við að hlusta á það  Blush

og svo verður farið núna fyrstu helgina í oct á haustfagnað þríburaforeldra þá er farið á hótel og gist eina nótt og gert sér glaðan dag mikið hlakkar mig til Smile 

læt þetta gott núna 

knús á alla mína nýju bloggvini og þá sem eiga eftir að koma 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga skjol

 Litli dúllurassinn að fá gleraugu, hún mun þá svo sannarlega sverfa sig í ættina okkar,öll mín 4 með þetta á nefinu gaurarnir misduglegir að nota þau en gellur alltaf með sín, hlakka til að sjá elskuna litlu með sín nýju.

Knús á þig og þín elsku systir

Helga skjol, 3.9.2008 kl. 07:08

2 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

hún maría mín að fá gleraugu hún verður allgjör dulla með þaug þar sem hún er svo mikið krútt fyrir en það er vonandi að þaug fái að haldast heil í meira en 1 vikur gangi þér vel aníta mín og ég byð að heilsa kallinum og sætu frænku mínum

kveðja að norðan

Dísa Gunnlaugsdóttir, 3.9.2008 kl. 08:36

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Æi, vonandi gengur vel hjá Maríu með gleraugun, hun er ábyggilega algjört krútt með þau. .

Knus á þig elsku systir,

Kristín Gunnarsdóttir, 3.9.2008 kl. 11:09

4 Smámynd: Brynja skordal

hæ og velkomin í minn bloggvinahóp sé að þú ert jafn rík og ég 6 börn og ert búsett á skaganum gaman af því en það hlýtur að vera mikið meira en nóg að gera með þríbura en yndislegt

Brynja skordal, 3.9.2008 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anita Björk Gunnarsdóttir
Anita Björk Gunnarsdóttir
Hæ hæ Aníta Björk heiti ég og er 6 barna móðir þar á meðal þríburar ég ætla nú bara að skrifa um allt og ekkert þegar mér dettur það í hug

Um bloggið

Anita Björk Gunnarsdóttir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband